20. mars 2007 klukkan 15:40
Jæja, þá er maður kominn heim frá London og stórskemmtileg ferð að baki.
Ég vaknaði rétt fyrir 5 á miðvikudaginn síðasta og fór niður á BSÍ og tók flugrútuna í Leifsstöð. Klukkan 9 flugum við síðan til London. Ég tók leigubíl á hótelið ásamt þremur öðrum á hótelið og þá keyrðum við meðal annars framhjá hitamæli sem var úti og á honum stóð 22°C. Ég reyndar efast um að það hafi verið alveg svo heitt en það var allavega frábært veður allan tímann nema bara hluta sunnudagsins. Eftir að allir voru búnir að koma sér fyrir á hótelinu fórum við í heimsókn í Baug og þar fengum við smá kynningu og boðið var upp á veitingar. Eftir það kíkti hópurinn síðan aðeins í bæinn og enduðum að setjast við einhver borð í þröngu húsasundi þar sem voru tveir barir sitthvoru megin við húsasundið. Báðir barirnir voru með borð fyrir utan en maður mátti bara sitja við borð þess bars sem maður verslaði við þó það væru bara kannski 2-3 metrar á milli innganganna á staðina.
Fimmtudagurinn var tekinn frekar snemma. Eftir morgunmatinn var underground-ið tekið og farið í höfuðstöðvar Landsbankans í London. Það er óhætt að segja að mín fyrstu kynni af underground-inu hafi ekki verið neitt sérstaklega góð því við vorum á ferðinni þarna rétt fyrir 9 þegar allir voru á leiðinni í vinnuna og því þurfti maður virkilega að TROÐA sér inn í lestina. Þegar í Landsbankann var komið fórum við á námskeið á vegum London stock exchange og eftir það höfðum við smá frjálsan tíma til að rölta um svæðið og ég rölti meðal annars framhjá þessari byggingu
Þessi bygging er kölluð gúrkan af nokkuð augljósum ástæðum, þó einhverjir hafi reyndar viljað líkja þessu við eitthvað annað
Eftir þessa stuttu pásu fórum við á kynningu hjá Landsbankanum. Eftir hana fórum við síðan í flottustu kynningu ferðarinnar. Þar fórum við í höfuðstöðvar Lehman brothers í London. Þeir eru staðsettir í 8.hæstu byggingu Lundúna og fór kynningin fram á 31.hæð. Hérna er mynd af byggingunni
Og hérna er útsýnið af 31.hæðinni

og önnur mynd af útsýninu
Móttökurnar sem við fengum þarna voru líka frábærar. Það voru þjónar sem löbbuðu á milli og buðu upp á snittur og fylltu á glös sem voru að tæmast. Eftir þessa kynningu fór ég ásamt nokkrum aðilum á Aberdeen steakhouse þar sem við fengum geðveikt gott nautafillet. Eftir það kíktum við aðeins á einhvern pöbb í hverfinu.
Föstudagurinn var einnig tekinn snemma og var underground-ið tekið í höfuðstöðvar Glitnis í London. Það var líklega óþægilegasta kynningin því þar var ekki boðið upp á sæti og því var maður alveg ónýtur í löppunum eftir þá kynningu. Síðan fórum við í kynningar hjá JP Morgan og Kaupþing og um kvöldið fór allur hópurinn saman út að borða á indverskum stað sem heitir Blue elephant. Þar átti eitt af skemmtilegri atvikum ferðarinnar sér stað. Þegar allir voru búnir að borða koma þjónarnir labbandi inn með einhverja köku á bakka og upp úr henni stendur blys. Þeir labba að einu borðinu, leggja bakkann fyrir framan einn strák og byrja að syngja afmælissönginn fyrir hann. Afmælisbarnið var í hláturskasti á meðan á söngnum stóð. Síðan þegar söngnum var lokið heimtuðu einhverjir ræðu þannig að hann stóð upp og þakkaði fyrir sig en vildi þó sérstaklega þakka þeim sem sat við hlið hans því hann ætti ekki afmæli fyrr en 29.júní. Við þessi orð sprakk salurinn alveg úr hlátri. Þá hafði semsagt vinur hans platað þjónana og sagt að hann ætti afmæli.
Laugardaginn notaði ég í að versla örlítið. Ég byrjaði reyndar á að kíkja í Notting Hill hverfið og kíkja á útimarkað þar. Ég var þar með þremur öðrum strákum en mér tókst að týna þeim þar sem það var alveg ótrúlega mikið af fólki þarna þannig að ég tók bara smá göngutúr um hverfið og tók síðan underground-ið niður á Oxford street og verslaði þar. Síðan um kvöldið fór ég ásamt nokkuð stórum hóp á Planet Hollywood að borða og eftir matinn fengum við smá svæði útaf fyrir okkur og þar var mikið stuð frameftir kvöldi.
Á sunnudeginum ákvað ég síðan að kíkja í smá túristarúnt um borgina. Sá þar meðal annars Big Ben

Fór ásamt fleirum í opinn tveggja hæða strætó sem tekur hring um borgina. Við spurðum hvað tæki langan tíma að fara hringinn og var sagt að þetta tæki um það bil 2 tíma. Eftir 2 tíma vorum við um það bil hálfnuð með hringinn og síðan bilaði strætóinn í þokkabót þannig að við biðum bara eftir næsta strætó og fórum að Buckingham palace, fórum þar út og tókum síðan underground-ið upp á hótel. Síðan var flogið heim klukkan 21:35 um kvöldið og það var óneitanlega nokkuð þægilegt að komast heim og leggjast upp í rúm.
Ótrúlega skemmtileg ferð samt að baki sem verður lengi í minnum höfð.