Aðalvalmynd

Auglýsing

15.febrúar

15. febrúar 2007 klukkan 12:52
Á laugardaginn síðasta fór ég á þorrablót með Njáli á Hellu. Við fórum austur fljótlega eftir hádegi á laugardeginum og þegar við komum í bæinn byrjuðum við á því að taka smá rúnt um bæinn þar sem ég hef ekki oft komið til Hellu síðan ég flutti þaðan. Síðan um kvöldið var komið að þorrablótinu. Það var ágætis skemmtun, reyndar þekkti ég nánast engan þarna en þó hitti ég einhverja sem ég kannaðist við. Síðan voru skemmtiatriði þarna og húmorinn sem var í gangi þar var ansi staðbundinn(held að þetta sé rétta orðið yfir það) og því hafði ég ekkert sérstaklega gaman að þeim þó svo að salurinn væri skellihlæjandi.
Í vikunni skráði ég mig í Lundúnaferðina sem farin verður með skólanum eftir mánuð. Ég vona að þetta eigi eftir að verða skemmtileg ferð, allavega er ég farinn að hlakka talsvert til.

Síðan komst ég að því í vikunni að það væri kominn heitur pottur í Borgarnesið. Það er greinilega ekki alveg nógu öflugt samskiptakerfið í fjölskyldunni því ég las þessar fréttir bara á bloggsíðunni hjá pabba
Glottandi Ég vissi reyndar að mamma og pabbi voru búin að vera að spá í að kaupa pott. En það er allavega ljóst að maður tekur með sér sundföt í næstu ferð upp í Borgarnes.
Þessa helgi er kennsla í vörustjórnun hjá mér sem þýðir að bæði föstudag og laugardag fer í skólann frá klukkan 9-ca.15. Það er alveg ótrúlega gaman að fara í skólann á laugardagsmorgni, eða þannig. Þetta þýðir að maður má víst ekki fara seint að sofa á morgun, en samt er ég að spá hvort ég ætti að reyna að sjá x-factor einhversstaðar, það kemur líklega bara í ljós í dag.

Síðan á laugardaginn er náttúrulega úrslitakvöldið í Eurovision og þá kemur í ljós hvort spádómurinn minn sé réttur. Ég stend allavega fastur á því ennþá að Eiríkur fari áfram. Endilega allir sem ekki hafa tekið þátt í könnuninni að drífa í því.


Jæja, held ég láti þetta nægja í bili.
Gísli Árni Gíslason
Una skrifar ...
alltaf þegar ég heyri minnst á Hellu þá sé ég okkur í hundanáttfötunum frægu (sem uxu með okkur ) að sniglast í bakaríinu á neðri hæðinni og stela okkur einum snúð eða svo til að narta í yfir afa ;O)
15. febrúar 2007 klukkan 14:16
Gísli Freyr skrifar ...
Gísli Árni , það er alveg rétt hjá þér , við lásum það líka á Blogginu hans afa :) það var rosalega skemmtilegt að þið skylduð koma í gærkveldi , komið þið bara sem oftast hehe . Bara mánuður í Lundúnarferðina vá ég væri orðinn svaka spenntur , kveðja til þín frændi og risaknún frá okkur Gísli og Co
17. febrúar 2007 klukkan 10:23
mamma skrifar ...
Til hamingju við höfðum rétt fyrir okkur um hvaða lag var best
Kveðja mamma
17. febrúar 2007 klukkan 22:27
Gísli Árni skrifar ...
Það var náttúrulega aldrei spurning með Eirík

Bara svona að gamni þá getum við rifjað upp það sem ég skrifaði 26.janúar síðastliðinn:
"ég segi að lagið sem Eiríkur Hauksson flytur, Ég les í lófa þínum, muni keppa fyrir Íslands hönd í Helsinki í vor. "
og þetta var náttúrulega áður en búið var að setja öll lögin á netið og áður en Eiríkur komst í úrslit:)
18. febrúar 2007 klukkan 16:57
Ertu búinn að fá vinnu í saumar????
18. febrúar 2007 klukkan 18:18
Ég meina nú í Sumar ????
18. febrúar 2007 klukkan 18:19
Jæja, hver tók í höndina á Eirki Hauks??? Og hver tók þig uppí herbergið þar sem allir úr X-Factor voru og aðaltrommarinn Benni var??? ;)
19. febrúar 2007 klukkan 18:50
Gísli Árni skrifar ...
Dísa, nei ég er ekki kominn með vinnu. En ég er búinn að sækja um hjá Glitni.
20. febrúar 2007 klukkan 14:08

Skrifa athugasemd