3 vikur...
21. febrúar 2007 klukkan 17:47
Það kom á daginn að ég hafði rétt fyrir mér varðandi Eurovision og Eiríkur Hauksson verður fulltrúi Íslendinga í Helsinki 12.maí. Ég er mjög sáttur með þá niðurstöðu og nú er bara að vona að hann standi sig vel úti.
Mál málanna þessa dagana virðist vera þessi klámráðstefna sem halda á hér á landi. Ég skil ekki alveg hvað þeir sem eru á móti þessu vilja að gert verði. Það er fólk að koma til landsins sem vinnur við vinnu sem er lögleg í þeirra heimalandi. Það kemur til landsins til þess að gera hluti sem eru löglegir hér á landi, því síðast þegar ég vissi var ekkert sem bannaði ráðstefnur eða fundarhald hér á landi. Samkv. þessu er engin ástæða til að banna þessu fólki að koma til landsins og það væri í raun bara fáránlegt að gera það.
Um helgina kíkti ég aðeins á djammið með Kjartani, Friðgeiri, Finni, Bigga og Bigga. Við horfðum fyrst á Eurovision og kíktum síðan á Cafe Rosenberg þar sem Ljótu hálfvitarnir voru að spila. Það var ágætis skemmtun, en eftir að hafa verið þar í ágætis tíma kíktum við á NASA þar sem Páll Óskar var að "þeyta skífum". Það var svaka stuð þar og mikil stemning, sérstaklega þegar Mihai Treisterio(hef ekki hugmynd um hvernig á að skrifa þetta), sem söng Tornero í Eurovision í fyrra fyrir hönd Rúmena, og Eiríkur Hauks komu og sungu.
Núna á föstudaginn er ég á leiðinni í mína aðra húðslípun og ég er svona að skoða þann möguleika að skreppa upp í Borgarnes einhvern tímann á föstudag, það fer reyndar mikið eftir því hvernig staðan verður á verkefnavinnu um helgina. Það er nóg af verkefnum í gangi þessa dagana og því óvíst hvort ég geti farið úr bænum. Það kemur allt í ljós.
Ég held ég skrifi ekkert meira í bili...
3 vikur í London

Gísli Árni Gíslason
en hvað kostar að fara í svona húðslípun?..er það ekki rándýrt? vont?
er að spá hvort ég eigi að fara í svona...