Aðalvalmynd

Auglýsing

Borgarnes

02. mars 2007 klukkan 18:12
Jæja, núna er ég kominn í Borgarnes. Njáll og Heiða höfðu beðið mig að skutla strákunum hingað í pössun því þau eru að fara á árshátíð í kvöld og ég ákvað bara að nýta ferðina og gista eina nótt hérna í Borgarnesi. Núna er ég kominn hingað í Borgarvíkina en mamma og pabbi eru enn að vinna þannig að ég þarf að passa strákana í smá tíma.
Annars er nóg að gera í skólanum þessa dagana í verkefnavinnu og maður er að hitta nokkra mismunandi hópa alla vikuna vegna mismunandi verkefna en þetta reddast allt saman á endanum.
Í gær fór ég í blóðbankann og gaf blóð í fyrsta skipti. Ég hafði farið um daginn í svona skoðun hjá þeim þar sem blóðsýni voru tekin og í gær fór ég að gefa í fyrsta skipti. Ég bjóst við að þetta yrði aðeins meira mál en þetta var þar sem það er næstum hálfur líter sem er gefið. En mér fannst þetta nú ekki mikið mál og bara gaman að vita til þess að maður sé kannski að hjálpa einhverjum með þessu. Ég komst að því í þessari ferið að ég er í blóðflokknum O- sem þýðir að allir geta þegið blóðið úr mér þannig að ég gæti verið að hjálpa einhverju ykkar í hvert skipti sem ég gef blóðBrosandi
Annars mæli ég bara með því að allir fari að gefa blóð og geri þannig góðverk. Síðan er ekki verra að það er náttúrulega boðið upp á veitingar þegar maður er búinn að gefa.
Núna styttist í Lundúnaferð og í dag eru bara 12 dagar í ferðina. Síðan er ég líka að fara á árshátíð hjá viðskiptaráði HR næsta föstudag þannig að það er nóg um að vera í skólanum og ekki bara í verkefnavinnuBrosandi
En ég held ég hafi þetta ekki lengra í bili. Vona að sem flestir kommenti og svo vona ég að allir fari að gefa blóðHlæjandi
Gísli Árni Gíslason
Arna Rún skrifar ...
 
Jáh, gefa blóð, mér þykir þú hugrakkur drengur, það myndi líkleg líða yfir mig að sjá nálina og allt blóðið.. ojbarasta.. :S
Bið að heilsa ykkur sunnanmönnum:D
04. mars 2007 klukkan 17:33
Heiða skrifar ...
Jamm takk fyrir aðstoðina og pössunina , var ekki bara gott að geta skutlast svona , vera með bíl til umráða :) Frábært hjá þér að gefa blóð , skiptir miklu máli og gerir mörg kraftaverk , svo er það bara 12-11-10-9.......... eru einhverir ekki orðinr spenntir , gangi þér vel í verkefnunum , og skemmtu þér vel á árshátiðinni (þannig að við sjáum ykkur ekki á föstud ha) kveðja Heiða og co
ps : ég frétti að það hefði verið svaklegt fjör í heitapottinum á föstudagskvöldið :) Okkar menn léku vel á poolara á laugardag , kláruðu að gömlum sið , hvort sem þeir spiluðu lélega eða vel , þeir allavegana unnu :) jahúuuuu
05. mars 2007 klukkan 08:21
Una skrifar ...
HEI ég reyndi að gefa blóð en mér var bara hafnað fékk bréf og alles manni er ekki einu sinni hafnað face to face skiluru manni er bara sent bréf!!!
ég vissi ekki að maður mætti ekki gefa blóð ef maður væri HIV smitaður :O









Djóóóók hahaha þarna plataði ég ykkur haha vá ég er sko fyndin í dag en þeir höfnuðu mér því ég var ekki með nógu mikið járn í blóðinu og þeir sögðu að ég ætti ekki að reyna aftur fyrr en eftir ár og minns er fínn í dag nóg af járni er búin að fara í andskotann allan nóg af blóðprufum allavegana! hehe maður fer kannski að skella sér aftur:O) ef maður þorir þeir gætu alltaf hafnað manni !
05. mars 2007 klukkan 14:10
Gísli Árni skrifar ...
Hehe... Góð, Una! Ég var agalega hissa þegar ég var að lesa þetta fyrst :)

8 dagar :)
06. mars 2007 klukkan 12:46

Skrifa athugasemd