Árshátíð á föstudag
07. mars 2007 klukkan 22:58
Búið að vera brjálað að gera í skólanum síðustu vikuna. Var í dag að vinna í tveimur verkefnum í skólanum og var uppí skóla í 7 tíma í verkefnavinnu. Fór síðan beint eftir það á Ölver að fylgjast með mínum mönnum leggja Lille og koma sér með því í 8 liða úrslit Meistaradeildarinnar.
Núna er bara vika í Lundúnaferðina og það er kominn smá spenningur í mann. Verð reyndar að vinna í verkefnum áður en ég fer út þannig að maður má ekki missa sig úr spenningi strax. Það er aðeins byrjað að birta dagskránna þarna úti og við förum í heimsóknir í Glitni, Kaupþing, Landsbankann, Baug, London stock exchange, JP morgan og Lehman brothers. Síðan munum við hafa laugardaginn frjálsan og sunnudaginn líka fram að fluginu þannig að maður ætti að geta fundið sér eitthvað til dundurs. Það eru einhverjir að spá í að fara á fótboltaleik og það væri gaman að fara á leik ef það er ekki uppselt á þá alla.
Annars eru núna bara 2 dagar í árshátíð og ég er búinn að kaupa mér miða á hana. Þetta lítur út fyrir að vera glæsileg árshátíð. Hún er haldin í sal Ferðafélags Íslands í Mörkinni.
Á matseðlinum er:
Forréttur: Nauta-carpaccio með stökku salati og balsamico.
Aðalréttur: Kryddjurtabakað lambaprime með rauðvíns- balsamico sósu.
Eftirréttur: Hvít súkkulaðimús með hindberjasósu og ferskum ávöxtum.
Veislustjóri er Þorsteinn Guðmundsson og Baggalútur spilar fyrir dansi auk þess sem Óli Palli verður DJ.
Ég gæti trúað að þetta verði skemmtilegt kvöld. Hef reyndar ekki hugmynd um hvað allur þessi matur er en þetta hljómar allavega sem eitthvað voðalega fínt.
Annars er voða lítið annað að frétta af mér. Síðustu dagar hafa að mestu farið í verkefnavinnu og næstu dagar munu líka fara í það. Læt þetta duga í bili. En ég reyni að blogga allavega einu sinni í viðbót áður en ég fer út...

Gísli Árni Gíslason
Gísli var sár þegar að hans maður datt út , en það varði í mínútu þá sagði hann að nú héldi hann bara með égvann hehe . hemmm hvað margir dagar núna :) kv Kef
en þessi áhrif hans eru enn að koma fram, á laugardagskvöldi (tek það sérstaklega fram að það var á laugardagskvöldi:) þá fór mín og náði í nintendo tölvuna sína sem var framleidd 1985 og byrjaði að spila super mario bros 1 hahahahaha og ég hætti ekki fyrr en nonni minn dró mig útúr húsi klukkan hálf 11.
ég vissi ekki hvað tölva var fyrr en Gísli kynnti mig fyrir henni ;O)