London á morgun :)
13. mars 2007 klukkan 21:38
Jæja, núna eru innan við 12 klukkustundir í brottför til London. Búið að pakka niður í tösku og þá fær maður að sjálfsögðu þessa algengu hugsun: Er ég að gleyma einhverju? ég vona að það sé allt komið í töskuna. Það skiptir allavega mestu máli að gleyma ekki vegabréfinu, flugmiðanum, símanum og veskinu.
Ég verð líklega að fara snemma að sofa í kvöld þar sem ég mun taka flugrútuna klukkan 5:45 í fyrramálið þannig að ég þarf líklega að vakna eitthvað um 5 leytið. Síðan er flugið klukkan 9. Við erum búin að fá afhenda dagskrána sem verður þarna úti og ég held að þetta eigi eftir að vera rosalega skemmtileg ferð.
Núna er ég allavega búinn að skila af mér þeim verkefnum sem voru í gangi fyrir ferðina þannig að núna get ég bara slakað á og hlakkað til fyrramálsins.
En ég held ég fari að kíkja á töskuna mína og athuga hvort ég sé nokkuð að gleyma einhverju. Síðan fer maður bara að telja niður í mínútunum
Læt þetta duga, næsta blogg kemur eftir að ég kem heim að utan...

Gísli Árni Gíslason
Man líka eftir einu augnabliki, Eiríkur á afmæli sama dag og þú Gísli minn, það er að segja 4. júlí.. uss... hva viltu segja til um það.. ??
Áfram Eiki og við verðum í 6 sæti yfir alla keppnina sem er svo sem ágætt.. Hvar verðum við kæru lesendur og hvernig finnst fólki lagið okkar??? (enska útgáfan)