Borgarnes
03. apríl 2007 klukkan 13:36
Jæja, nú er ansi langt síðan ég bloggaði síðast. Síðan ég bloggaði síðast hefur mestur tími minn farið í lærdóm. Það voru skil á nokkrum verkefnum í síðustu kennsluvikunni og síðan var ég í fyrsta lokaprófinu mínu í gær og gekk það bara ágætlega held ég.
Núna er ég kominn upp í Borgarnes en ég verð hérna framyfir helgi. Ég kom hérna í gær en ég tók strætó upp á Akranes ásamt Jóa. Hann hafði fengið að gista á Reynimelnum í tvær nætur.
Ég fór einmitt með Jóa, Bigga og Kjartani í bíó á laugardaginn á Meet the Robinsons í Kringlubíó þar sem hún er sýnd í þrívídd. Mér fannst þetta skemmtileg mynd og ekki skemmdi fyrir að hafa hana í þrívídd en það var oft á tíðum mjög flott.
Næstu dagar munu líklega einkennast af blöndu af lærdómi og afslöppun. Næsta lokapróf er LAUGARDAGINN 14.apríl... ég er ekki alveg nógu sáttur við það en það verður bara að hafa það. Síðan á milli þess sem maður verður lærandi hérna mun maður skreppa í heita pottinn hérna
En jæja, ætlaði bara að skella inn einhverju smávegis hérna...

Gísli Árni Gíslason
ps: ef þú vilt sjá hvað Friðgeir er að gera NÚNA kíktu þá á gervihnöttinn á síðunni okkar :)
Við Glitniskonur ásamt mökum vorum á árshátíð um helgina, skemmtum okkur mjög vel, enda hressar konur. Örn komst ekki með okkur, kona hans er með brjóstlos og treysti sér ekki. Birna verður hjá okkur í sumar og verið er að ganga frá ráðningu hinnar afleysingarmanneskjunar. Ert þú búinn að fá vinnu í sumar? Gangi þér vel í prófunum, bið að heilsa.