Síðasta lokaprófið eftir einn og hálfan tíma.
20. apríl 2007 klukkan 12:28
Nú er sko komið langt síðan ég bloggaði síðast. Páskunum var eytt í Borgarnesi þar sem flestir dagar fóru í afslöppun, heitan pott og að borða góðan mat. Síðan á mánudeginum eftir páska fór ég aftur til Reykjavíkur til að undirbúa mig fyrir próf. Síðan þá hefur mestur minn tími farið í prófundirbúning og nú sér loks fyrir endann á því. Síðasta prófið mitt er á eftir, klukkan 14. Ég tel mig vera búinn að læra ágætlega fyrir það þannig að ég ákvað bara að nota tímann í að henda inn einni færslu.
Ég er búinn að fara í 3 próf. Fór í eitt próf fyrir páska sem gekk ágætlega, eitt á síðasta laugardag sem gekk ekkert spes og síðan eitt á miðvikudag sem gekk nokkuð vel. Þá er bara vonandi að mér gangi ágætlega á eftir
Síðan eftir helgi byrjar vinna í lokaverkefninu í Stefnumótunaráfanganum. Það verður 2 vikna vinna sem endar síðan með kynningu á verkefninu. Ég gæti trúað að það verði ansi mikil vinna í þessu verkefni og maður hafi ekki mikinn tíma til að slappa af næstu 2 vikur. Þess vegna verður helgin notuð fyrir kærkomna hvíld, allavega að hluta til.
Varðandi sumarstarf, þá er ég ekki kominn með vinnu ennþá. Hafði gert mér vonir um að fá starf hjá Glitni en var ekkert farinn að heyra í þeim ennþá þannig að ég hafði samband og þá var mér sagt að fyrst það væri ekki búið að hafa samband ennþá fengi ég líklega ekki vinnu. Honum fannst líklegasta ástæðan vera sú að ég get ekki unnið í tvær vikur í júní þegar ég fer til Spánar. Það þarf alltaf að vera einhver galli við allt. Þetta verður ábyggilega ótrúlega skemmtileg ferð en leiðinlegt að hún skuli hafa áhrif á það hvar ég geti fengið vinnu. En núna er ég allavega að leita að vinnu og búinn að sækja um á nokkrum stöðum og býð bara eftir svörum.
En ég held ég hafi þetta ekki lengra í bili.

Gísli Árni Gíslason
vonandi hefur þér gengið vel í prófinu í dag , og við erum alveg viss um að þú fáir góða vinnu í sumar . (svo er spurnig hvort þú fórnir ferðinni fyrir Glitni ?) held að þú hafir bara gott að því að slappa af í sólinni :) sjáumst á morgun kv Kefl
færðu ekki bara vinnu í búðinni hjá pabba þínum!;) eða ætlaru kannski að vera í borginni bara?
Mér var hugsað til þín áðan er ég sá viðtal við hinn nýja bankastjóra Glitnis á stöð 2 , jú auðvita ungur og fallegur maður en ótalandi því þegar hann var búinn að segja
mér hlakkar til" ekki einu sinni heldur tvisvar í stuttu viðtali þá var það nóg fyrir mig og ég skipti yfir á gamla ruv. !!!!!!
Hvernig er þetta hægt??? ok ef maðurinn hefði sagt þetta einu sinni þá.... en aftur án þess að blikna og hafa hugmynd um ... nei ekki svona!!!
Fyrirgefðu en ég varð aðeins að tjá mig um þetta!!! :)
Annars vonandi gengur allt vel hjá þer í prófum, og gleðilegt sumar!!!
kveðja að norðan:)
Eða hvað er þetta með þig???
kveðja úr bóngóblíðu fyrir norðan :)