Alveg að koma sumarfrí...
05. maí 2007 klukkan 18:02
Jæja, best að henda inn einni stuttri færslu. Hef ekki verið í neinu bloggstuði upp á síðkastið en set núna inn nokkrar línur. Ég er búinn að fá niðurstöður úr 3 prófum af 4 og er búinn að ná því öllu. Hef ekki náð neinum súpereinkunnum en þó yfir meðaltali í einu faginu. Þó er það mikilvægast að ég hef náð öllum prófunum og þarf því ekki að hafa áhyggjur af endurtektarprófum, allavega ekki enn sem komið er.
Nú er ég búinn að vera á fullu í verkefnavinnu en við erum að fara að skila stóru verkefni eftir helgi og erum við núna á lokasprettinum í því. Þessir síðustu dagar hafa sumir hverjir verið ansi erfiðir og til að mynda mættum við klukkan 9 eða 10 um morguninn einn daginn og fórum ekki heim fyrr en eftir miðnætti þannig að þetta tekur á. En þetta er sem betur fer alveg að verða búið.
Ég er ekki enn kominn með vinnu en það fer vonandi að breytast fljótlega. Í dag eru 5 vikur í Spánarferðina og það er komið smá spenna í mann en þó verður maður að klára þetta verkefni áður en maður getur farið að hlakka mikið til.
En nú styttist í kosningar og ekki möguleiki að láta það fara framhjá sér, svo framarlega að maður sé í einhverju sambandi við umheiminn. Verður gaman að sjá hver niðurstaðan verður og hvort að ríkisstjórnin haldi velli. Fyrir þá sem eru ekki komnir með leið á kosningaumræðunni mega alveg koma með smá innskot í umræðuna hér í kommentum. Fínn staður til að koma með smá áróður fyrir þá örfáu sem líta við á þessari síðu
Hef þetta ekki lengra í bili, vildi bara láta vita af mér...

Gísli Árni Gíslason
Nú eru bara 34 DAGAR í Spán , við meigum telja í dögum núna hehe Víííí ííí
Haltu bara áfram að standa þig frændi , kveðja Gísli Freyr
Segjum ekkert meira í bili...
Gaman að sjá að þer gengur vel með prófin,og til lukku með þau sem komin eru, ekki spurning með að þú klárar þetta :)
Leitt að vinnan er ekki komin á hreint, það vantar næturvaktir hér við Hótelið og kannski fleira , láttu mig bara vita við reddum þessu!!! :)
Stjórnmál þá vona ég að þessi ríkisstjórn haldi ekki velli,og framsókn fái skellinn eins og skoðanakannanir sýna, en ætli þeir komi ekki út úr skápnum eins og venjulega á kjördag,,,, þetta verður spennandi!!!!!!
kærar kveðjur að norðan úr hreinni og óspilltri nátturu!!!!!!
Ps.. ekki segja mér frænku þinni að þú kjósir framsón!!!
kveðja frá frænku þinni sem er ekki sama!!!! :)
til lukku með þetta,
kveðja frá frænku sem fylgist með!!! :)