Aðalvalmynd

Auglýsing

Byrjaður að vinna

17. maí 2007 klukkan 11:42
Nú set ég stutta færslu fyrst það er byrjað að kvarta yfir manni.
Ég er kominn með vinnu og byrjaði í henni á mánudaginn síðasta. Starfið er í þjónustuveri Flugfélags Íslands og er þetta alveg ágætis starf. Felst að mestu leyti í því að svara í síma og bóka flug fyrir fólk.
Annars er það helst að frétta af mér að það gekk ekki alveg nógu vel í einu lokaprófinu mínu og þarf ég að fara í upptökupróf á þriðjudaginn. Ég held að það ætti nú ekki að vera mikil hætta á að ég nái því ekki núna en þegar ég tók lokaprófið var þetta próf síðast í röðinni og minni tími til undirbúnings en fyrir hin prófin. Þannig að maður var kominn með svolítið leið á því að vera að læra fyrir prófin og var því kannski ekki jafn duglegur að læra fyrir það eins og maður hefði annars verið. Enda var rúmlega 20% fall í þessu fagi þannig að þetta hefur átt við fleiri en mig.
Við skiluðum af okkur verkefninu um daginn og erum búnir að halda kynningu á því og gekk hún bara nokkuð vel. Nú bíðum við bara eftir einkunn fyrir verkefnið.
Í dag eru bara 23 dagar í Spánarferðina og maður fer nú að hlakka svolítið tilSvalur
Ég fór á KR-Keflavík á mánudaginn síðasta og það var mjög gaman að sjá Keflvíkinga vinna KR-ingana. Síðan langar mig mjög mikið að skreppa til Keflavíkur á sunnudaginn til að sjá Keflavík-FH. Gæti trúað að það verði helvíti góður leikur. Það kemur bara allt í ljós.
Gott í bili...
Gísli Árni Gíslason
JAHÚ og bloggið kom hehe, þú flýgur í gegn núna frændi , ekki spurnig , hlökkum til að sjá þig á sunnudaginn , komdu bara í mat líka borðum bara snemma hehe . 23dagar verða fljótir að líða , og eitt sem gleymdist, taka derhúfu með í ferðapakkann ef þú átt , kv Gísli , Björgvin og Árni
ps: fékkstu sendinguna í morgun :) þetta átti að fara inn í gær en gleymdist .
17. maí 2007 klukkan 12:27
17, dagar 17, dagar 17, dagar heheh , Til lukku með prófið frændi , þú ert svo klár farðu bara að trúa því :) Sáttur við fötin, heldurðu að þú notir þetta ?
23. maí 2007 klukkan 08:45
Birgitta skrifar ...
má ég koma með sem farangur? ...ég væri sko alveg til í að vera á leiðinni til spánar!;)
til hamingju með árangurinn í skúlen !:)
07. júní 2007 klukkan 12:17
Birgitta skrifar ...
 
Hvernig var á spáni? :)
25. júní 2007 klukkan 18:51
Halla Frænka skrifar ...
 
Til hamingju með daginn, frændi. Vonandi áttu góðan dag:)
Kveðja úr sólinni í Njarðvík,
Halla og co.
04. júlí 2007 klukkan 12:19
AAAAAAAAAAARRRRRRRRRRGGGGGGGGGGGG , NÝTT BLOGG FRÆNDI , ÞAÐ HLÝTUR BARA AÐ VERA BÚIÐ AÐ GERAST EITTHVAÐ HJÁ ÞÉR Í SUMAR :) KVEÐJA FRÁ RIP , RAP OG RUP .
21. júlí 2007 klukkan 23:34
JÆJA FRÆNDI NÚ HLÍTUR AÐ VERA KOMIÐ AÐ NÝJU BLOGGI HA, ÞAÐ ER SVO MIKIÐ BÚIÐ AÐ GERAST HJÁ ÞÉR , ÞANNIG AÐ ÞÚ HEFUR FRÁ NÓGU AÐ SEGJA , KVEÐJA FRÁ UPPÁHALDSFRÆNDUMÞÍNUM :)
27. ágúst 2007 klukkan 22:31
Una skrifar ...
 
hei dude!! ertu hættur ??
13. september 2007 klukkan 18:48
Arna Rún skrifar ...
 
hallóóó.. hvað er í gangi hér á bæ? ekkert blogg frá því í maí?.. ég held það sé sveiérþá kominn tími á eitt slíkt!!! jeee? :)
19. september 2007 klukkan 20:25

Skrifa athugasemd