Verkefnisvinna
08. maí 2006 klukkan 22:51
Jæja, nú erum við á fullu í að reyna að leggja lokahönd á verkefnið okkar. Það stefnir í það að við náum alveg að klára þetta, en það þýðir samt ekki að slaka á fyrr en við erum alveg búin.
Mamma og pabbi komu suður í fyrradag og þegar þau komu fór ég með þeim á tónleika með Breiðfirðingakórnum í Fella- og Hólakirkju(ef ég man rétt) og það var alveg ágætis skemmtun. Ég get ekki sagt að ég hafi þekkt öll lögin en samt var þetta fínt.
Í gær voru Njáll og Heiða að kaupa körfuboltaspjald og það var eytt dágóðum tíma í að prófa það í gær. Það var mjög gaman, það var komið mjög langt síðan ég hef spilað körfubolta... og í raun frekar langt síðan ég hreyfði mig eitthvað.
Reyndar var eitt slæmt við körfuboltann í gær, það var að ég fékk bolta svona skemmtilega framan á baugfingur vinstri handar og er ennþá með smáverk í honum...
Annars er lítið að frétta af mér nema það að mestur tími manns fer í verkefnavinnu þessa dagana.
Ég ætla að reyna að vera duglegri að blogga á næstunni... ég segi þetta reyndar alltaf en ég ætla samt að reyna að vera duglegur.
Gísli Freyr, tengillinn þinn er kominn hér til hliðar...

Gísli Árni Gíslason

Síðan eftir það horfði ég bara á DVD mynd og fór síðan að sofa.