Byrjaður að vinna
17. maí 2007 klukkan 11:42
Nú set ég stutta færslu fyrst það er byrjað að kvarta yfir manni.
Ég er kominn með vinnu og byrjaði í henni á mánudaginn síðasta. Starfið er í þjónustuveri Flugfélags Íslands og er þetta alveg ágætis starf. Felst að mestu leyti í því að svara í síma og bóka flug fyrir fólk.
Annars er það helst að frétta af mér að það gekk ekki alveg nógu vel í einu lokaprófinu mínu og þarf ég að fara í upptökupróf á þriðjudaginn. Ég held að það ætti nú ekki að vera mikil hætta á að ég nái því ekki núna en þegar ég tók lokaprófið var þetta próf síðast í röðinni og minni tími til undirbúnings en fyrir hin prófin. Þannig að maður var kominn með svolítið leið á því að vera að læra fyrir prófin og var því kannski ekki jafn duglegur að læra fyrir það eins og maður hefði annars verið. Enda var rúmlega 20% fall í þessu fagi þannig að þetta hefur átt við fleiri en mig.
Við skiluðum af okkur verkefninu um daginn og erum búnir að halda kynningu á því og gekk hún bara nokkuð vel. Nú bíðum við bara eftir einkunn fyrir verkefnið.
Í dag eru bara 23 dagar í Spánarferðina og maður fer nú að hlakka svolítið til
Ég fór á KR-Keflavík á mánudaginn síðasta og það var mjög gaman að sjá Keflvíkinga vinna KR-ingana. Síðan langar mig mjög mikið að skreppa til Keflavíkur á sunnudaginn til að sjá Keflavík-FH. Gæti trúað að það verði helvíti góður leikur. Það kemur bara allt í ljós.
Gott í bili...

Gísli Árni Gíslason